Hreint vatn
Það er grundvallaratriði í rekstri baðstaða að vatnið sé hreint og öruggt. Laugar eru mjög mismunandi af stærð og gerð, því eru verkefnin fjölbreytt. Við bjóðum upp á heildarlausnir þegar kemur að gæðum vatns við krefjandi aðstæður þar sem hefðbundnar aðferðir duga ekki, til dæmis vegna legu, gerðar eða annara rekstrarlegra sjónarmiða þar sem upplifun gesta er höfð í fyrirúmi.
Þörungagróður yfir sumartímann er þekkt vandamál í laugum hérlendis og þá sérstaklega þar sem klór er lítið notaður. Hreinn botn lengir líftíma laugarinnar og kemur í veg fyrir óþarfa viðhald. Við búum að mikilli reynslu við úrlausnir á þessu verkefni og getum því aukið rekstraröryggi til muna.