Baðlónskerfi ehf er fyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum fyrir náttúrulaugar, baðlón og aðra sundstaði. Hreint og öruggt vatn er okkar sérgrein. Við bjóðum upp á heildarlausnir fyrir baðstaði þegar kemur að þrifum og viðhaldi. Einnig bjóðum við upp á ráðgjöf varðandi allan rekstarbúnað og allt sem snýr að daglegum reksti lauga. Félagið hefur unnið við úrlausn krefjandi verkefna, þar sem kröfur um rekstraröryggi og jákvæða upplifun gesta eru í fyrirrúmi.